Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Lagsjár og rannsóknir: Hvernig nota má lagsjá (confocal microscope) til myndgreiningar og gagnavinnslu

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
17. nóvember 2016 - 12:20 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Keldur - bókasafn.
Háskóli Íslands
Fyrirlesari: Sævar Ingþórsson, sérfræðingur við Lífvísindasetur HÍ. Á undanförnum áratugum hefur smásjártækninni fleygt fram á undraverðum hraða, og eru notkunarmöguleikar smásjáa af hinum ýmsu gerðum orðnir nánast ótæmandi. Lífvísindasetur Háskóla Íslands keypti fyrir tveimur árum lagsjá (á ensku confocal microscope) sem hefur valdið byltingu í þeim aðferðum sem vísindamenn innan háskólans hafa nýtt sér til hins ítrasta. Í þessari kynningu mun lagsjáin verða kynnt og þeir möguleikar sem hún býður upp á verða ræddir. Ennfremur verður farið yfir hvernig má vinna töluleg gögn úr þeim myndum sem smájáin gefur rannsakandanum. Að lokum verður farið yfir þá þróun sem hefur átt sér stað á sviði smásjártækni á undanförnum árum, og möguleikar til stækkunar og frekari uppbyggingar ræddir.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012