Hvenær hefst þessi viðburður:
9. nóvember 2016 - 16:00
Staðsetning viðburðar:

Øyvind Kvalnes dósent í viðskiptasiðfræði í Osló heldur fyrirlestur um smugur í siðferðinu. Fyrirlesturinn fer fram í Þjóðminjasafninu miðvikudaginn 9. nóvember og hefst kl. 16.
Í fyrirlestrinum verður fjallað siðareglur starfstétta og þá tlihneigingu að fylgja þeim bókstaflega og líta svo á að það sem ekki er sérstaklega nefnt í þeim sé siðferðilega heimilt.
Fyrirlesturinn er haldinn í tilefni útgáfu bókar hans Siðfræði og samfélagsábyrgð í íslenskri þýðingu. Á eftir verður boðið uppá veitingar og bókin verður á sérstöku tilboði.