Hvenær hefst þessi viðburður:
9. nóvember 2016 - 11:40
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
HT-101

Á kynningunni verður farið yfir þá spennandi möguleika á skiptinámi og starfsnámi sem standa nemendum á Hugvísindasviði til boða.
Háskóli Íslands er í samstarfi við yfir 400 háskóla víða um heim og árlega nýta sér fjölmargir að taka hluta af náminu erlendis og sækja sér þannig sérhæfingu í námi og dýrmæta reynslu.
Kynningin er haldin í tengslum við Alþjóðaviku HÍ 7.-11. nóvember.
Kostir þess að fara í skiptinám:
» fjölbreyttara námsframboð
» skiptinámið er metið inn í námsferil við Háskóla Íslands
» tækifæri til að kynnast menningu annarra landa
» einfaldara og ódýrara en að fara í nám á eigin vegum
» skólagjöld eru felld niður, m.a. við háskóla í Bandaríkjunum og Kanada
» aukin tungumálakunnátta
» dýrmæt reynsla sem nýtist í frekara námi eða á vinnumarkaði
Alþjóðadagur Háskóla Íslands verður haldinn fimmtudaginn 10. nóvember frá kl. 12 til 14 á Háskólatorgi. Öll velkomin.