Hvenær hefst þessi viðburður:
9. nóvember 2016 - 13:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Stofa 229

Miðvikudaginn 9. nóvember n.k. verður haldið málþing á vegum Guðfræðistofnunar Háskóla Íslands. Yfirskrift málþingsins er:
Hvað er í deiglunni? Rannsóknir í Guðfræði- og trúarbragðafræðideild.
Á málþinginu munu kennarar við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ halda erindi sem byggja á rannsóknum þeirra. Málþingsstjóri er Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.
Málþingið verður haldið í stofu 229 í Aðalbyggingu HÍ. Það hefst kl. 13:00 og lýkur u.þ.b. kl. 15:00 með nærandi veitingum og spjalli. Málþingið er öllum opið.
Dagskrá:
- Sólveig Anna Bóasdóttir: Guðfræði og intersex
- Hjalti Hugason: Samband ríkis og kirkju á 20. öld. – Mótsagnakennd þróun
- Sigfinnur Þorleifsson: Án … Guðs. Um traustið og þakklætið
- Gunnlaugur A. Jónsson: Vatn úr kletti. Möglunin í Massa og Meríba (2Mós 17) í íslenskri áhrifasögu
- Rúnar M. Þorsteinsson: „Við yfirgáfum allt og fylgdum þér!“ Heimspekilegt stef í Markúsarguðspjalli
Veitingar og spjall