Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Doktorsvörn í íslenskum bókmenntum - Þórdís Edda Jóhannesdóttir

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
7. nóvember 2016 - 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Hátíðasalur
Háskóli Íslands

Mánudaginn 7. nóvember fer fram doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá ver Þórdís Edda Jóhannesdóttir doktorsritgerð sína í íslenskum bókmenntum, Jómsvíkinga saga: Sérstaða, varðveisla og viðtökur.

Andmælendur eru Marteinn Helgi Sigurðsson og Judith Jesch, prófessor í víkingafræðum við Háskólann í Notthingham. Aðalleiðbeinandi var Ármann Jakobsson prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, en í doktorsnefnd voru auk hans Sverrir Tómasson prófessor emeritus og Alison Finlay pófessor í enskum og íslenskum miðaldabókmenntum við Birkbeck College í London.

Gunnþórunn Guðmundsdóttir, forseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands í Aðalbyggingu og hefst klukkan 13:00.

Um efni ritgerðarinnar

Jómsvíkinga saga er meðal elstu varðveittu veraldlegra sagna á Íslandi. Hún hefur að öllum líkindum verið skrifuð á fyrri hluta 13. aldar en er varðveitt í fjórum ólíkum gerðum frá miðöldum í jafnmörgum handritum. Fræðileg umfjöllun um söguna hefur einkum beinst að tveimur þáttum. Annars vegar hefur uppruni og tilurð sögunnar verið í brennidepli fræðimanna en hins vegar hvernig eigi að skilgreina hana. Hún hefur þótt falla illa að hefðbundinni flokkun íslenskra miðaldabókmennta vegna þess að í henni mætast einkenni konungasagna, Íslendinga-sagna og fornaldarsagna. Í rannsókninni er fjallað um Jómsvíkinga sögu í víðu samhengi með það í huga að textinn, varðveisla hans og hugmyndir um hann á ýmsum tíma geti skýrt stöðu hennar meðal íslenskra miðaldabókmennta. Um leið er textinn nýttur til þess að varpa ljósi á ýmsa þætti sagnaritunar á miðöldum. Jómsvíkinga saga er meðal elstu íslensku verka þar sem sögulegum atburðum er miðlað með aðferðum sem fremur einkenna skáldskap en sagnfræði. Í ritgerðinni eru færð rök fyrir því að nýjungar í bókmenntum á 12. öldinni á meginlandi Evrópu skipti máli þegar kemur að þróun íslenskra miðaldabókmennta um og upp úr 1200. Með nákvæmri greiningu á Jómsvíkinga sögu kemur í ljós blöndun hefða og nýjunga sem á eftir að taka á sig skýrari mynd í veraldlegum íslenskum miðaldabókmenntum á 13. og 14. öldinni.

Um doktorsefnið

Þórdís lauk BA-prófi í íslensku við Háskóla Íslands og MA-gráðu í íslenskum bókmentum við sama skóla. Hún er stundakennari við Háskóla Íslands.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012