Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Doktorsvörn Jónínu Völu Kristinsdóttur á Menntavísindasviði

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
11. nóvember 2016 - 13:00
Nánari staðsetning: 
Skriða á Menntavísindasviði v. Stakkahlíð
Háskóli Íslands

Jónína Vala Kristinsdóttir ver doktorsritgerð sína í menntavísindum við Uppeldis- og menntunarfræðideild Menntavísindasviðs Háskóla Íslands:
Collaborative inquiry into mathematics teaching  á íslensku Samvinnurýni um stærðfræðinám.

Andmælendur eru dr. Simon Goodchild prófessor, Háskólanum í Agder, Noregi, og dr. Tom Russell prófessor, Queens háskóla í Ontario, Kanada.

Aðalleiðbeinandi var dr. Allyson Macdonald prófessor, Menntavísindasviði Háskóla Íslands , meðleiðbeinandi var dr. Barbara Jaworski  prófessor,  Loughborough háskóla, Englandi, auk þess sat í doktorsnefndinni dr. Hafdís Guðjónsdóttir prófessor, Menntavísindasviði Háskóla Íslands.

Dr. Ólafur Páll Jónsson, prófessor og deildarforseti Uppeldis- og menntunarfræðideildar við Menntavísindasvið, stjórnar athöfninni.

Megintilgangur rannsóknarinnar var að afla þekkingar og öðlast skilning á starfsþróun kennara sem endurskoða stærðfræðikennslu sína. Rannsóknin er í tveimur hlutum. Fyrri hlutinn er rannsókn kennara á sviði stærðfræðimenntunar á eigin starfi þar sem sjónum var beint að því hvernig gagnrýnin ígrundun á eigin skilningi á námskenningum hafði áhrif á og mótaði seinni hluta rannsóknarinnar. Í síðari hlutanum var aðferðafræði þróunarrannsókna (e. developmental research) beitt við að rannsaka þriggja ára þróunarferli þar sem sjö grunnskólakennarar, í tveimur grunnskólum, unnu með rannskanda að því að greina stærðfræðikennslu frá mismunandi sjónarhornum. Meginmarkmiðið var að kanna hvernig kennarar og kennari í stærðfræðimenntun unnu saman að því að rannsaka eigið starf og með hvaða hætti samvinnan hafði áhrif á starf þeirra. Stefnt var að því að bera kennsl á leiðir til að styðja kennara við að mæta þörfum ólíkra nemenda við stæðfræðinám og öðlast skilning á hvernig nýta megi þær við að bæta kennaramenntun.
Meginniðurstöður eru þær að kennarar í grunnskóla og kennaramenntun þróuðu með sér námssamfélag þar sem samvinnurýni var beitt við að ígrunda ólíkan skilning á stærðfræðinámi- og kennslu. Leyst var úr ágreiningi um árangursríkar leiðir við stærðfræðinám með því að skoða og ígrunda fjölbreyttar námsleiðir barna. Þátttakendur skerptu skilning sinn á hvernig tryggja megi aðgengi ólíkra nemenda að stærðfræði með því að ræða vandamál sem upp komu í kennslustundum þeirra. Niðurstöðurnar benda til þess að með stuðningi við að rannsaka eigin kennslu eflist kennarar í að þróa stærðfræðikennslu sína og skapa námssamfélag þar sem nemendur læra stærðfræði á rannsakandi hátt. Þær renna stoðum undir að gefa þurfi kennurum tækifæri til valdeflingar og þátttöku í menntarannsóknum. Þannig  nýtist sérfræðiþekking þeirra á skólastarfi við að þróa árangursríkar leiðir til að bæta það.

Jónína Vala Kristinsdóttir (f. 1952) er lektor við Kennaradeild Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Viðfangsefni hennar í starfi og rannsóknum tengjast aðallega stærðfræðimenntun, kennslufræði og kennaraþróun. Jónína lauk B.Ed. prófi frá Kennaraháskóla Íslands, prófi í uppeldisfræði frá Uppsala Háskóla, og M.Ed. í uppeldis- og menntunarfræðum frá Kennaraháskóla Íslands.
Jónína hefur reynslu af kennslu í grunnskóla og við kennaramenntun, fyrst sem æfingakennari við Æfingaskóla Kennaraháskóla Íslands og frá árinu 2003 sem aðjúnkt og síðar lektor við Kennaraháskóla Ísland, nú Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Hún hefur tekið þátt í rannsóknar- og þróunarstarfi um stærðfræðinám í grunnskólum og rannsakað eigin kennslu á háskólastigi með samkennurum.
Jónína Vala er gift Gylfa Kristinssyni, stjórnmálafræðingi. Þau eiga börnin Margréti Völu, Kristin Björgvin og Auði Sesselju og fjögur barnabörn, þá Róbert Gylfa, Tómas Diðrik, Kolbein Viðar og Matthías Baldvin.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012