Hvenær hefst þessi viðburður:
10. nóvember 2016 - 12:00
Staðsetning viðburðar:

Á árlegum Alþjóðadegi Háskóla Íslands getur þú kynnt þér spennandi möguleika á námi og samstarfi erlendis. Háskóli Íslands á í samstarfi við nær 500 háskóla um allan heim um stúdenta- og starfsmannaskipti, rannsóknir og kennslu.
Gestum gefst kostur á að kynna sér skiptinám, nám á eigin vegum, starfsnám og kennara- og starfsmannaskipti. Þá býðst þeim að ræða við erlenda skiptinema, fyrrverandi skiptinema, fulltrúa sendiráða og ræðisskrifstofa og fulltrúa fjölmargra íslenskra stofnana og félaga.
Á Háskólatorgi verður mikið um að vera. Tónlist og dans, veglegt happdrætti og alþjóðlegt matar- og drykkjarsmakk.
Fyrrverandi og núverandi skiptinemar, erlend sendiráð og ræðisskrifstofur, íslenskar stofnanir og félög verða á Torginu.