
Þann 8. nóvember ganga Bandaríkjamenn að kjörborðinu til að kjósa nýjan forseta. Kosningabaráttan hefur verið hatrammlegri og ummæli frambjóðenda stóryrtari en áður hefur þekkst. Á þessum opna fundi mun Michael T. Corgan leitast við að skýra hvað er að gerast með kosningar í Bandaríkjunum. Hvaða áhrif hafa breytt samsetning kjósenda, aukin notkun samfélagsmiðla og ný samskiptaform haft á kosningabaráttuna?
Michael T. Corgan er dósent í alþjóðasamskiptum við Pardee School of Global Studies í Boston háskóla.
Fundarstjóri: Dr. Bjarni Már Magnússon, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík.
Fundurinn fer fram á ensku og er opinn öllum.
Nánari upplýsingar á vefsíðu Alþjóðamálastofnunar: www.ams.hi.is
Alþjóðamálastofnun á Facebook: www.facebook.com/althjodamalastofnun