Hvenær hefst þessi viðburður:
10. október 2016 - 12:00
Staðsetning viðburðar:

Forseti lýðveldisins Guðni Th. Jóhannesson setur Jafnréttisdaga á Háskólatorgi með pomp og prakt. Rektor Háskóla Íslands ávarpar gesti og Improv Iceland stígur á stokk með glæsilegt atriði.
Söngur, gleði og glæsibragur sem þú vilt ekki missa af.
Á sama tíma verða kynningar á nemendafélögum, starfseinungum, ráðum og rannsóknarstofum sem tengjast jafnréttismálum innan HÍ. Komdu í spjall, skráðu þig í félag, fáðu ráðgjöf og upplýsingar um nýjustu pælingar í jafnréttismálum!
