Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Kynjuð fjármál - fjárfesting til framtíðar

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
18. október 2016 - 9:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Háskóli Íslands

Lokaráðstefna GARCIA í samstarfi við Félagsvísindasvið HÍ, Reykjavíkurborg og
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagskrá

9:00-9:05        Opnunarorð: Dr. Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði við
Stjórnmálafræðideild HÍ, og íslenskur verkefnisstjóri GARCIA.
9:05-10:05      Gender budgeting as feminist policy change. The Scottish experience:  Dr. Angela O’Hagan, lektor í opinberri stefnumótun við Glasgow Caledonian University.
10:05-10:20    GARCIA Gender the Academy and Research: combating career instability and assymmetries:Thomas Brorsen Smidt, doktorsnemi við Stjórnmálafræðideild HÍ.
10:20-10:45   Kaffihlé
10:45-11:15    Kynjuð fjárlagagerð af því við höfum ekki efni á öðru:Halldóra Friðjónsdóttir, formaður verkefnisstjórnar um innleiðingu kynjaðrar hagstjórnar og fjárlagagerðar hjá ríkinu. Herdís Sólborg Haraldsdóttir sérfræðingur hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
11:15-11:45   Eitt spor og svo annað til… Kynjuð fjárhagsáætlun hjá Reykjavíkurborg:  Lára Rúnarsdóttir, verkefnastýra kynjaðrar fjárhags- og starfsáætlunar hjá Reykjavíkurborg.
11:45-12:15   Er rétt gefið?Daði Már Kristófersson, forseti Félagvísindasviðs og Aðalbjörg Lúthersdóttir, rekstrarstjóri Félagsvísindasviðs HÍ.
12:15-12:45    Kynjuð fjármál háskóla - mikilvægi þess að kafa dýpra: Finnborg Salome Steinþórsdóttir, doktorsnemi við Stjórnmálafræðideild HÍ.
12:45-13:00   Umræður og lokaorð

Fundarstjóri:  Sverrir Jónsson, skrifstofustjóri hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Ráðstefnan fer fram bæði á ensku og íslensku. 
Aðgangur er ókeypis - öll velkomin


GARCIA: Gendering the Academy and Research: Combating Career Instability and Asymmetries, er samevrópsk rannsóknarverkefni (2014-2017) sem háskólastofnanir í Belgíu, Sviss, Slóveníu, Hollandi, Austurríki, Íslandi og Ítalíu taka þátt í. GARCIA-verkefnið byggist á rannsókn á jafnrétti í vísindasamfélagsinu með sérstakri áherslu á fyrstu stig starfsframans. GARCIA leggur áherslu á innleiðingu jafnréttisúrræða í víðtæku samstarfi við vísindasamfélagið og opinbera aðila.

Einn meginþáttur íslenska hluta verkefnisins er að skoða kynjuð fjármál í háskólasamfélaginu þar með talið fjörmögnun kennslu og rannsókna á ólíkum sviðum og dreifing fjármuna innan háskólastofnana. Þorgerður Einarsdóttir prófessor og Gyða Margrét Pétursdóttir lekor í kynjafræði við Stjórnmálafræðideild HÍ eru fulltrúar Háskóla Íslands í verkefninu. Nári upplýsingar um GARCIA-rannsóknina má finna á http://garciaproject.eu/ 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012