
Stöðugleiki léttsaltaðra þorskflaka (Gadus morhua) í frosti - Þættir sem hafa áhrif á stöðugleika og afurðarbreytileika.(Stability of lightly salted cod fillets (Gadus morhua) during frozen storage - Factors affecting the stability and the product variability).
Helstu niðurstöður voru þær að léttsöltun jók stöðugleika þorskflakanna, en þær niðurstöður eru mjög jákvæðar fyrir framleiðendur léttsaltaðra þorskflaka þar sem alltaf er verið að keppast við það að lengja geymsluþol fiskafurða. Afurðarbreytileiki léttsaltaðra þorskflaka á markaði er mjög mikill, en frekari rannsókna þarfnast til þess að átta sig á þeim breytum sem hafa mestu áhrifin á þennan breytileika.
Leiðbeinendur: Sigurjón Arason prófessor við matvæla- og næringarfræðideild og yfirverkfræðingur við Matís og Magnea G. Karlsdóttir verkefnastjóri við Matís. Prófdómari: Dr. Kristín A. Þórarinsdóttir matvælafræðingur hjá Marel.