Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Hvernig fjölmenningarsamfélag erum við? Þjóðminjasafn Íslands og Háskóli Íslands

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
25. nóvember 2016 - 13:00 til 17:00
Nánari staðsetning: 
Þjóðminjasafn Íslands
Háskóli Íslands

Þjóðminjasafn Íslands og Háskóli Íslands kynna málþingið: Fræðamót sem haldið verður 25. nóvember 2016 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands.

Hvernig fjölmenningarsamfélag erum við?
Málþing Þjóðminjasafns Íslands og Háskóla Íslands.

Á málþinginu verður tekið til umræðu fjölmenningarsamfélagið Ísland. Sérstaklega er hugað að móttöku, aðstoð og daglegu lífi innflytjenda og flóttafólks hér á landi. Hvaða áhrif hefur þessi hópur fólks haft á íslenskt menningarsamfélag? Hvernig stuðla íslensk söfn og aðrar menningarstofnanir að samvinnu, fræðslu og umræðum um eða fyrir innflytjendur og flóttafólk?

Málþinginu er ætlað að vera þverfaglegt, við hvetjum því fræðimenn, safnafólk og aðra innan menningargeirans til þess að senda inn ágrip að erindum, byggðum á eigin rannsóknum, verkefnum eða störfum.


Erindum er ætlað að vera annað hvort 10 eða 20 mínútur að lengd, með um 10 mínútum fyrir umræður á eftir. Ágrip skulu vera 200-250 orð á lengd þar sem taka skal fram titil erindis, inntak og helstu niðurstöður. Merkið erindið með nafni, starfstitli og netfangi. Ágrip skulu berast eigi síðar en 19. ágúst 2016 á netfangið gdw@hi.is.

Nánari upplýsingar veita Anna Lísa Rúnarsdóttir, sviðstjóri rannsókna og þróunar á Þjóðminjasafni Íslands (anna.lisa@thjodminjasafn.is) og Guðrún Dröfn Whitehead, aðjúnkt og nýdoktor, safnafræði, Háskóli Íslands (gdw@hi.is).


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012