Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Kynningarfyrirlestur - Andri S. Björnsson, prófessor við Heilbrigðisvísindasvið

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
18. nóvember 2016 - 15:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 132
Háskóli Íslands
Þann 18. nóvember nk. flytur Andri Steinþór Björnsson, prófessor við Sálfræðideild, erindi í tilefni að framgangi sínum.
 
Á Heilbrigðisvísindasviði er haldið upp á framgang eða ráðningu nýrra prófessora með sérstökum kynningarfyrirlestri. Athafnirnar hefjast með stuttu yfirliti yfir helstu störf viðkomandi prófessors, en svo tekur hann sjálfur við og flytur erindi um störf sín og framtíðarsýn í kennslu og rannsóknum. Í lok athafnarinnar gefst svo tækifæri til þess að spjalla og gleðjast með hinum nýja prófessor.
 
Tilgangur kynningarfyrirlestranna er að vekja athygli á hinum nýja prófessor, störfum hans og áherslum, ekki síst til þess að auka tengsl og samstarf innan skólans, en einnig til þess að hefja prófessorsstarfið til vegsemdar. 
 
Allir velkomnir!
 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012