Hvenær hefst þessi viðburður:
6. desember 2013 - 12:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Stofa 101

Opinn fyrirlestur á vegum Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála og Alþjóðamálastofnunar
Fyrirlesari er Dr. Emmanuel Brunet-Jailly dósent við University of Victoria í Kanada en hann leiðir alþjóðlegan hóp um 100 fræðimanna frá 21 háskóla í ellefu löndum m.a. í Kanada, Bandaríkjunum, Evrópu, Asíu og Miðausturlöndum sem hafa fengið styrk til að skoða landamæri á 21. öldinni - Borders in Globalisation- raunveruleg, óbein og sýndar landamæri ríkja á 21. öldinni (real, remote and virtual borders). Í fyrirlestrinum mun hann kynna rannsóknina og þau álitamál sem tekist er á við.
Fundarstjóri er Dr. Maximilian Conrad, lektor við Stjórnmálafræðideild HÍ.