Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Mæðradagsganga Göngum saman

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
8. maí 2016 - 11:00
Staðsetning viðburðar: 
Mæðradagsganga Göngum saman
Styrktarfélagið Göngum saman efnir til vorgöngu fyrir alla fjölskylduna á mæðradaginn. Gengið verður frá Háskólatorgi þar sem íslenskir vísindamenn, sem þegið hafa styrki félagsins, kynna störf sín. 
 
Húsið opnar kl. 10 og gangan hefst kl. 11.
 
Gangan er gjaldfrjáls en göngufólki gefst kostur á að styrkja rannsóknir á brjóstakrabbameini með frjálsum framlögum eða með því að festa kaup á varningi Göngum saman. Í ár verða m. a. seldir bolir, höfuðklútar og margnota innkaupapokar sem hannaðir voru sérstaklega fyrir félagið af Lóu Hjálmtýsdóttur og vettlingar úr íslenskri ull, hannaðir af Farmers Marked. 
 
Einnig verður gengið í  Borgarnesi, Stykkishólmi, Patreksfirði, Ísafirði, Hvammstanga, Siglufirði, Akureyri, Vopnafirði, Egilsstöðum, Neskaupstað, Reyðarfirði, Höfn, Vestmannaeyjum, Selfossi og Reykjanesbæ. Allar göngur hefjast kl. 11 og nánari upplýsingar um hvern stað verður að finna á heimasíðunni www.gongumsaman.is
 
Styrktarfélagið Göngum saman
Markmið styrktarfélagsins Göngum saman er að afla fjár til að styrkja grunnrannsóknir á eðli og orsökum brjóstakrabbameins og flýta fyrir bættri meðferð og auknum lífslíkum. Félagið úthlutar styrkjum í október ár hvert og frá stofnun þess, haustið 2007, hefur um 60 milljónum verið úthlutað til íslenskra rannsóknaraðila á sviði brjóstakrabbameins. Í haust er stefnt að því að 10 milljónir renni til vísindarannsókna. Á sama tíma hefur öflugum vísindasjóði verið komið á fót og stendur hann nú í um 50 milljónum króna.
 
Göngum saman er rekið af sjálfboðaliðum og fjármagnað með sölu varnings, frjálsum framlögum og styrkjum frá fyrirtækjum. Félagið leggur áherslu á mikilvægi hreyfingar til heilsueflingar og stendur fyrir vikulegum göngum á nokkrum stöðum á landinu mestan hluta ársins. 
 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012