
Mánudaginn 25. apríl fer fram doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá ver Sean Lawing doktorsritgerð sína: Perspectives on Disfigurement in Medieval Iceland. Vörnin fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands í aðalbyggingu Háskólans og hefst hún kl. 13:00.
Andmælendur eru Jón Viðar Sigurðsson, prófessor við Universitetet i Oslo og William Ian Miller, prófessor við University of Michigan Law School. Aðalleiðbeinandi Seans var Ármann Jakobsson prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda en í doktorsnefnd voru auk hans Vésteinn Ólason fyrrverandi prófessor í íslenskum bókmenntum og forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Lára Magnúsardóttir forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra.
Um efni ritgerðarinnar
Ritgerðin er rannsókn á líkamlegri afmyndun í íslenskri menningu á þjóðveldisöld, sér í lagi á 13. öld. Með orðinu afmyndun er átt við hvers kyns líkamlegar skerðingar eða frávik, hvort sem um er að ræða meðfæddar skerðingar, áunnar eða af manna völdum. Efniviður rannsóknarinnar eru norræn miðaldalög og miðaldabókmenntir. Þeir lagatextar sem liggja til grundvallar eru norsku lagasöfnin Gulaþingslög og Frostuþingslög og hin íslenska Grágás. Margvíslegar tegundir miðaldabókmennta eru greindar en Sturlunga saga er þó í forgrunni. Ekki er um heildarúttekt á efninu að ræða heldur eru í hverjum kafla teknir fyrir og greindir ólíkir þættir líkamlegrar afmyndunar allt frá vöggu til grafar. Umfjöllunarefnin eru: bætur fyrir limlestingar, útburður afmyndaðra barna, afmyndun og níð, limlestingar á Sturlungaöld og greftrun stakra líkamshluta. Sama nálgun er notuð í öllum þáttum ritgerðarinnar og með djúpgreiningu er sýnt fram á að í þeim textum sem rannsakaðir eru birtast ólík menningarleg og samfélagsleg viðhorf til afmyndunar og eðli hennar. Hægt er að túlka samskonar dæmi um afmyndun á margvíslegan hátt eftir sjónarhorni. Af þeim sökum er því hvorki mögulegt né æskilegt að setja fram einfaldar skilgreiningar á afmyndun á þjóðveldisöld og ætti að taka tillit til þeirrar niðurstöðu við frekari rannsóknir á efninu.
Um doktorsefnið
Sean Lawing er fæddur 15. may 1969. Hann hefur lokið BA-prófi í þýsku og MA-prófi í germönskum málum og bókmenntum frá University of North Carolina. Hann er nú kennari í Department of History and Social Sciences við Bryn Athyn College, Pennsylvania.