Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Réttlæti gegnum þjóðarétt: Mikilvægi og áhrif yfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna um réttindi frumbyggja

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
30. mars 2016 - 12:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 101
Háskóli Íslands

Réttlæti gegnum þjóðarétt: Mikilvægi og áhrif yfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna um réttindi frumbyggja

Frummælandi
Dr. Mauro Barelli, dósent við lagadeild City Law School

Hefur samþykkt Sameinuðu þjóðanna um réttindi frumbyggja frá 2007, leitt til alþjóðalöggjafar sem svarar kröfum um réttlæti fyrir valdalitla og viðkvæma hópa eins og til dæmis Rómafólk og landbúnaðarverkamenn? Metið verður hvort þjóðarétturinn hafi brugðist nægilega og réttilega við mannréttindakröfum frumbyggja. Sérkenni baráttu frumbyggja fyrir réttlæti verða skoðuð og leitast við að draga ályktanir um ástæður hinnar jákvæðu viðurkenningar þjóðaréttar á réttindum frumbyggja, sem gæti varpað ljósi á hugsanleg áhrif þessarar lagaþróun á baráttu annarra minnihlutahópa.

Dr. Mauro Barelli er dósent við lagadeild City Law School í London. Hann kennir þjóðarétt, alþjóðleg mannréttindi og um réttindi minnihlutahópa og frumbyggja. Dr. Barelli hefur skrifað mikið um spurninguna um réttindi frumbyggja að þjóðarétti og hefur starfað með alþjóðlegum frjálsum félagasamtökum að réttindum minnihlutahópa og frumbyggja. Árin 2005-2006 var hann lögfræðingur fyrir hönd ríkisstjórnar Bosníu og Hersegóvínu fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag þar sem reyndi á samning SÞ um ráðstafanir gegn og refsingar fyrir hópmorð.

Fundarstjóri er Brynhildir G. Flóvenz, dósent við Lagadeild Háskóla Íslands.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.


 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012