Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Sæmundarstund 2016

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
22. mars 2016 - 11:45 til 12:25
Staðsetning viðburðar: 
Sæmundur á selnum, Oddakirkja, Eyjafjallajökull. Ljósm. 21.4.2010 Þór Jakobsson.

Sæmundarstund var fyrst haldin á aldarafmæli Háskóla Íslands árið 2011 að frumkvæði Oddafélagsins, sem er félag áhugamanna um endurreisn fræðaseturs að Odda á Rangárvöllum þar sem Sæmundur fróði bjó. Stundin hefur verið haldin árlega síðan, jafnan á degi sem næst vorjafndægrum.

Þar er lærdómsmannsins og þjóðasagnapersónunnar Sæmundar fróða Sigfússonar minnst en hann var uppi á 11. og 12. öld. Sæmundur fór utan til náms og nam m.a. við skóla í Evrópu áður en hann sneri aftur til Íslands og gerðist prestur að Odda á Rangárvöllum.

Dagskráin hefst á Háskólatorgi en líkt og fyrri ár fer Sæmundarstund síðan fram við styttuna af Sæmundi á selnum sem stendur í Skeifunni fyrir framan Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Styttuna gerði Ásmundur Sveinsson og vísar hún til frægrar þjóðsögu af viðureign Sæmundar við kölska sem samkvæmt þjóðsögunni flutti Sæmund heim til Íslands í selslíki.

DAGSKRÁ:
Á Háskólatorgi:
11:45 Aron Ólafsson, formaður Stúdentaráðs, kynnir atburðinn og söguna
11:50 Elísabet Ýr, formaður sviðsráðs Verkfræði- og Náttúruvísindasviðs heldur tölu um Sæmund Fróða
12:00 Farið niður að styttunni

Hjá styttunni af Sæmundi fróða:
12:05 Oddafélagið heldur stutta tölu
12:10 Elísabet Ýr afhendir Heiði Önnu viðarskjöld með mynd af Sæmundi og selnum, kemur það í hlut Hugvísindasviðs að halda utan um Sæmundarstund að ári liðnu.
12:15 Leikskólabörn frá Mánagarði syngja nokkur lög
12:25 athöfn lokið


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012