Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Með fróðleik í fararnesti - Fuglaskoðun í Grafarvogi

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
23. apríl 2016 - 11:00
Nánari staðsetning: 
Bílastæðið við Grafarvogskirkju
Háskóli Íslands
Þegar farfuglarnir flykkjast heim til Íslands er vorið komið og sumarið á næsta leiti. Gunnar Þór Hallgrímsson, dósent við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, og Tómas Grétar Gunnarsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi, leiða ferð í Grafarvog þar sem farfuglarnir safnast saman laugardaginn 23. apríl kl. 11. Hist verður á bílastæðinu við Grafarvogskirkju þaðan sem gengið verður inn í voginn. Þátttakendur taki með sér sjónauka og gjarnan fuglabækur. Áætlað er að ferðin taki um tvær klukkustundir.
 
Gangan er hluti af verkefni Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands, Með fróðleik í fararnesti, sem hófst á aldarafmæli skólans árið 2011. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskólans blandast saman í þessum áhugaverðu gönguferðum. Markmiðið með þeim er að vekja áhuga almennings á fræðslu og hollri útivist og fjölga valkostum í þeim efnum. Um leið er vakin athygli og vonandi áhugi á fjölbreyttri starfsemi Háskóla Íslands og Ferðafélagsins.
 
Þátttaka ókeypis og allir velkomnir.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012