Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Daniel Rees með erindi við Hagfræðideild

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
23. mars 2016 - 12:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 101
Háskóli Íslands

Daniel Rees prófessor við Háskólann í Colarado í Denver er væntanlegur til landsins og heldur opinn fyrirlestur á vegum Hagfræðideildar Háskóla Íslands, miðvikudaginn 23. mars. Erindið ber heitið: Occupational Licensing and Health: Evidence from Early Midwifery Law. Starfsleyfi og heilsa: Rannsókn á lögum um fæðingarhjálp

"Það er alltaf auðgandi fyrir lítil fræðasamfélög eins og hið íslenska að fá virt vísindafólk í heimsókn." segir Tinna Laufey Ásgeirsdóttir varadeildarforseti við Hagfræðideild. "Auk þess  er efnið sem hann mun fjalla um bæði áhugavert og mikilvægt. Hann hefur áhuga á því hvort lögverndun starfsheita sé gagnleg eða skaðleg og mun fjalla um efnið út frá lögum um fæðingaþjónustu í þetta skiptið" segir Tinna Laufey.

Erindið ætti því að vera fróðlegt fyrir marga, hvort sem þeir hafa áhuga á starfsréttindum eða öðrum einkaleyfum, öryggi í heilbrigðisþjónustu, fæðingaþjónustu sérstaklega eða vinnumarkaði í heild sinni.  

Erindið er opið og allir eru velkomnir í Odda 101, 23. mars kl. 12-13


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012