Hvenær hefst þessi viðburður:
18. mars 2016 - 12:10 til 12:50
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
101

Föstudaginn 18. mars næstkomandi verður haldinn annar kynningarfundur MBA-námsins í Háskóla Íslands. Fundurinn verður haldinn í stofu 101 að Háskólatorgi og er frá kl. 12:10-12:50.
Magnús Pálsson forstöðumaður MBA-námsins kynnir námið og fyrirkomulag þess en einnig mun Ingvar Már Gíslason MBA 2016 og markaðsstjóri Norðlenska segja okkur frá reynslu sinni af náminu.
Að loknum kynningarfundi býðst áhugasömum að sitja kennslustund í námskeiðinu Samningafærni og siðfræði í MBA-náminu en hefst hún kl. 13:00 og stendur til 13:45.
Boðið verður upp á létta hádegishressingu.
Skráning á kynningarfundinn fer fram hér