Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Kennslumálaþing 2016 - Hvernig metum við gæði kennslu?

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
18. mars 2016 - 13:00 til 16:15
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Litla torg
Háskóli Íslands
Árlegt kennslumálaþing Háskóla Íslands verður haldið á Háskólatorgi (Litla torgi) föstudaginn 18. mars nk. kl. 13.00-16.15. Þingið er vettvangur lifandi samræðu um aukin gæði náms og kennslu í Háskóla Íslands. Að þessu sinni er áherslumál þingsins hvernig meta á gæði kennslu.
 
Að málþinginu standa Stúdentaráð, kennslumálanefnd, gæðanefnd og Kennslumiðstöð Háskóla Íslands. Málþingið er ætlað bæði kennurum og nemendum.
 
 
 
Dagskrá
13.00-13.05   Þingið sett. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.
 
13.05-14.00   Fjögur stutt inngangserindi:
Hvernig er kennsla metin við Háskóla Íslands? Magnús Diðrík Baldursson, skrifstofustjóri rektorsskrifstofu og gæðastjóri Háskóla Íslands.
Hvað er góð kennsla og hvernig metum við gæði hennar? Niðurstöður könnunar (K2) meðal nemenda og starfsfólks Háskóla Íslands. Fulltrúar í Stúdentaráði.
Hvað segir ný Stefna Háskóla Íslands 2016-2021 um mat á gæðum kennslu? Sigurður Magnús Garðarsson prófessor og Steinunn Gestsdóttir prófessor, formenn stýrihóps stefnumótunar Háskóla Íslands.
Áhugaverðar aðferðir við mat á kennslugæðum í öðrum löndum. Guðrún Geirsdóttir, dósent og deildarstjóri Kennslumiðstöðvar.
 
14.00-14.15   Kaffihlé
 
14.15-15.45   Samræðuborð:
Fyrri umferð: Viðmið um góða kennslu?Þátttakendur taka þátt í umræðum. Borðstjórar skrá niðurstöður.
 
Seinni umferð: Hvernig og hverjir eiga að leggja met á gæði kennslu út frá settum viðmiðum?Þátttakendur taka þátt í umræðum. Borðstjórar skrá niðurstöður.
 
15.45-16.15   Samantekt (veggspjaldasýning) og málþingi slitið. Boðið upp á léttar veitingar
 
Málþinginu stýrir Aron Ólafsson, formaður Stúdentaráðs. Umræðuborðum stýra fulltrúar náms- og kennslunefnda stúdenta og kennslunefnda fræðasviða.
 
Til að áætla fjölda í veitingum eru þátttakendur vinsamlega beðnir um að skrá sig á heimasíðu Kennslumiðstöðvar. Slóðin er www.kennslumidstod.hi.is

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012