Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Samfélög femínista sem þekkingarsamfélög – þekkingarsköpun og dulin stigveldi

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
17. mars 2016 - 12:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Fyrirlestrasalur Þjóðminjasafns Íslands
Háskóli Íslands

Milica Minić, kynja- og þróunarsérfræðingur og rannsakandi, heldur sjöunda fyrirlestur vormisseris, „Samfélög femínista sem þekkingarsamfélög – þekkingarsköpun og dulin stigveldi“.

Milica hefur unnið að jafnréttismálum í yfir 20 ár. Starfsvettvangur hennar hefur aðallega verið í löndunum á Balkanskaga, á vegum ýmissa grasrótarverkefna, félagasamtaka og alþjóðastofnana. Milica lauk MA-prófi frá Utrecht-háskóla í Hollandi og Central European-háskólanum í Búdapest í Ungverjalandi. Heimaborg hennar Belgrad í Serbíu en hún er búsett í Reykjavík.

Í fyrirlestrinum fjallar Milica um þekkingarsköpun, miðlun og viðtökur innan þekkingarsamfélaga femínista á Íslandi og í Serbíu. Í viðleitni til að skilja þessa ferla ígrundar hún nokkrar spurningar. Í fyrsta lagi veltir hún því upp að hvaða leyti staðsetning varpar ljósi á og mótar femíníska þekkingarsköpun. Er eitthvað sérstakt við hálfjaðarlönd, eins og Ísland og Serbíu, sem hefur áhrif á hvernig þekking er sköpuð, henni er miðlað og hún móttekin? Ef gert er ráð fyrir því að löndin sæki í fjölbreytt menningarleg, pólitísk og táknræn áhrif, hverjir eru þá hinir mótandi þættir þegar metið er hvaða þekkingarviðmið eru ráðandi? Hvernig móta þekkingarsamfélög á hálfjaðri, eins og Ísland og Serbía, sjálfsmynd og afstöðu?

Með því að beita alþjóðlegri kerfisgreiningu (ens. world systems analysis) staðsetur Milica rannsóknir sínar innan hins gagnrýna, fræðilega ramma fjölþjóðlegra femínískra kenninga, innan félagsfræðinnar og í víðari merkingu hinna staðbundnu stjórnmála.

Fyrirlesturinn er fluttur á ensku, er öllum opinn og aðgangur er ókeypis.

Viðburðurinn er á Facebook!

Hádegisfyrirlestraröðin á vormisseri 2016 er haldin í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands og UNU-GEST, Alþjóðlega jafnréttisskóla Háskóla sameinuðu þjóðanna.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012