Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Forseti Íslands: Hverskonar embætti er þetta? Hlutverk og staða forsetaembættisins í stjórnskipun Íslands

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
18. mars 2016 - 12:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 101
Háskóli Íslands

Forseti Íslands: Hverskonar embætti er þetta? Hádegisfundaröð 18. mars - 23. júní 2016

Háskóli Íslands

Föstudaginn 18. mars halda Björg Thorarensen, prófessor við Lagadeild, og StefaníaÓskarsdóttir, dósent við Stjórnmálafræðdeild HÍ erindi um hlutverk og stöðu forsetaembættisins í stjórnskipun Íslands. Þær munu ræða stjórnskipunarlega stöðu embættisins við lýðveldisstofnun og hvernig hún hefur þróast undanfarin misseri. Fundurinn hefst kl. 12:00 og fer fram í stofu 101 í Odda í Háskóla Íslands.

Fyrirlestrar Bjargar og Stefaníu eru hluti af fundaröðinni Forseti Íslands: Hverskonar embætti er þetta?  Þar munu fræðimenn við Háskóla Íslands greina og ræða um embætti forseta Íslands út frá sjónarhorni stjórnmála-, lög- og sagnfræðinnar. Lokafundurinn verður með pallborðsumræðum þar fræðimenn ræða kosningabaráttuna og við hverju má búast í þróun forsetaembættisins í kljölfar kosninganna út frá áherslum og gengi frambjóðenda.

Þann 25. júní nk. ganga Íslendingar að kjörborðinu til að kjósa sér nýjan forseta.  Löngum hefur verið deilt um hvernig ber að túlka ákvæði stjórnarskrárinnar um embætti forseta Íslands og skiptar skoðanir hafa verið um hvernig forsetinn beitir valdheimildum embættisins.  Umræðan um hlutverk og völd forseta Íslands hefur verið vaxandi á undanförnum árum og ýmist er talað um pólitískan forseta eða forseta sem sameiningartákn þjóðarinnar. Má búast við að umræðan um hlutverk og valdsvið embættisins verði enn fyrirferðarmeiri nú í aðdraganda forsetakosninganna og að skiptar skoðanir verði, bæði meðal frambjóðenda sem og þjóðarinnar, um hvernig embætti forseta Íslands eigi að þróast á næstu árum.

Það er Stjórnmálafræðideild, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, Sagnfræðistofnun og Lagastofnun við Háskóla Íslands sem standa að fundaröðinni og fjórir hádegisfundir verða haldnir fram að forsetakosningunum 25. júní nk. Allir fundirnir fara fram í Odda 101 í Háskóla Íslands og dagskrá fundaraðarinnar er sem hér segir:

•    18. mars: Forsetaembættið í stjórnskipun Íslands, Björg Thorarensen, prófessor við Lagadeild, og Stefanía Óskardóttir, dóesent við Stjórnmálafræðideild HÍ, ræða stjórnskipunarlega stöðu forseta Íslands við lýðveldisstofnun og hvernig hún hefur þróast undanfarin misseri.
•    15. apríl: Forsetaembættið sem sameiningartákn, Guðni Th. Jóhannesson, dósent við Sagnfræði- og heimspekideild hugmyndina ræðir um forseta Íslands sem sameiningartákn þjóðarinnar. Þátttakendur í pallborðsumræðum: Hulda Þórisdóttir, lektor við Stjórnmálafræðideild og Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við Lagadeild HÍ.
•    18. maí: Væntingar til forsetaembættisins, Ragnheiður Kristjánsdótttir, prófessor við Sagnfræði- og heimspekideild, og Birgir Hermannsson, aðjúnkt við Stjórnmálafræðideild HÍ, ræða um væntingar til forsetaembættisins m.a. út frá lýðræðishugmyndum og í alþjóðlegum samanburði. 
•    23. júní: Forseti Íslands eftir kosningarnar 2016: Hverskonar embætti verður það?Á fundinum verður rýnt í skoðannakananir um gengi frambjóðenda og hugmyndir þeirra um hlutverk og völd forseta Íslands, sem og rætt um hvernig embættið mun þróast á næstum árum með nýjum forseta. Þátttakendur í pallborðsumræðunum: Ólafur Þ. Harðarson prófessor við Stjórnmálafræðideild, Stefanía Óskarsdóttir dósent við Stjórnmálafræðideild, Þorgerður Einarsdóttir prófessor í kynjafræði við Stjórnmálafræðideild, og Guðmundur Hálfdánarson prófessor við Sagnfræði- og heimspekideild.

Allir velkomnir

Nánari upplýsingar hjá Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála í síma 525 5454 eða í netfanginu sjofn@hi.is  og  á vefsíðu http://stjornsyslustofnun.hi.is/


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012