Hvenær hefst þessi viðburður:
17. mars 2016 - 10:30 til 15:40
Staðsetning viðburðar:

Grænir dagar fara nú fram í níunda sinn. Þessi árlegi viðburður í Háskóla Íslands er á vegum GAIA, félags meistaranema í umhverfis- og auðlindafræði. Markmiðið er að stuðla að vitundarvakningu um málefni tengdum umhverfinu, innan háskólans jafnt sem út í samfélagið.
Í ár verður sjónum beint að loftslagsbreytingum og viðbrögðum samfélagsins við þeim. Viðburðir Grænna daga eru fyrst og fremst í formi fyrirlestra um samfélagslegar hliðar loftslagsbreytinga en einnig verða ýmsir skemmtilegir hliðarviðburðir á meðan á Grænum dögum stendur. Viðburðirnir fara að mestu fram á ensku og nánari dagskrá sjá á facebook síðu Grænna daga.