Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Með fróðleik í fararnesti - Á slóðum kræklingsins í Hvalfirði

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
12. apríl 2014 - 13:00
Nánari staðsetning: 
Lagt verður af stað frá Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands
Háskóli Íslands

Kræklingur er hollur og afar bragðgóður en hins vegar getur verið varasamt að safna honum til manneldis á ákveðnum árstíma. Gísli Már Gíslason, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, og Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurnesjum, leiða árvissa ferð á slóðir kræklingsins í Hvalfirði. Kræklingi verður safnað og fræðst um hann og verkun hans. Þátttakendur fá að bragða á kræklingi í fjöruborðinu og hinir kjörkuðu á ýmsu öðru úr lífríki fjörunnar. Ferðin er farin í samvinnu við Ferðafélag barnanna.

Lagt verður af stað frá Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, kl. 13. Hægt verður að sameinast þar í bíla. Gert er ráð fyrir að ferðin taki um það bil þrjár klukkustundir að akstrinum í Hvalfjörð meðtöldum.  Minnum fólk á að taka með sér ílát undir kræklinginn, klæða sig eftir veðri og að mæta í stígvélum.

Háskóli Íslands og Ferðafélag Íslands halda áfram samstarfi sínu um gönguferðir sem efnt var til í tilefni aldarafmælis skólans 2011. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskólans blandast saman í áhugaverðum gönguferðum og nú hjólaferðum um höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni þess. Ferðirnar verða sex talsins og tekur hver um tvær klukkustundir. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.

Markmiðið með samstarfinu er að vekja áhuga almennings á fræðslu og hollri útivist og fjölga valkostum í þeim efnum. Um leið er vakin athygli og vonandi áhugi á fjölbreyttri starfsemi háskólans og Ferðafélagsins.
------------------------------------------
Næstu ferðir:

3. maí kl. 11 - Tómas Grétar Gunnarsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurlandi, leiðir ferð í Grafarvog þar sem farfuglar safnast fyrir á leirunni. Þátttakendur koma saman á bílastæðinu við Grafarvogskirkju kl. 11 árdegis og mælst er til að þeir taki með sér sjónauka.

12. júní kl. 19 - Hrefna Sigurjónsdóttir, prófessor við Kennaradeild Háskóla Íslands, og Gísli Már Gíslason, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, leiða göngu í Elliðaárdal þar sem skyggnst verður inn í heim skordýranna. Lagt verður af stað frá gömlu rafstöðinni við Elliðaár kl. 19. Göngumenn eru hvattir til að taka með sér stækkunargler.

23. ágúst kl. 11 – Silke Werth, nýdoktor við Líf- og umhverfisvísindastofnun, og Gísli Már Gíslason, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild,  leiða gönguferð í Heiðmörk þar sem sveppum verður safnað saman og fræðst um þá, verkun þeirra og matreiðslu. Lagt verður af stað frá Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, kl. 11. Hægt verður að sameinast þar í bíla.

13. september kl. 11 - Karl Benediktsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, leiðir hjólaferð um hjólastíga borgarinnar. Staldrað verður við á nokkrum stöðum og fjallað um breytta borgarmynd. Þátttakendur mæti á reiðhjóli. Lagt verður af stað frá Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, kl. 11.

11. október kl. 11 - Steinunn J. Kristjánsdóttir  og Orri Vésteinsson, prófessorar við Sagnfræði- og heimspekideild, leiða göngu um miðborgina þar sem skyggnst verður inn í upphaf landnáms og horft yfir sundið til Viðeyjar. Lagt verður af stað frá Aðalstræti 16  kl. 11.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012