
Lísabet Guðmundsdóttir flytur fyrirlestur í hádegisfyrirlestraröð Félags fornleifafræðinga, námsbrautar í fornleifafræði við Háskóla Íslands og Þjóðminjasafns Íslands, þann 9. mars kl. 12 í sal Þjóðminjasafnsins.
Fyrirlesturinn ber yfirskriftina Skógarnýting í Fnjóskadal.
Í Fnjóskadal er einn af elstu skógum landsins og þar fór fram umfangsmikil járnvinnsla á 10. til 13. öld. Rauðablástur krefst mikils magns af kolum og ekki hefði verið hægt að stunda iðjuna í allan þann tíma án þess að skógarhögg hafi verið stundað með skipulögðum hætti. Staðsetningin hefur verið kjörin til járnvinnslu en alls 19 járnvinnslustaðir eru þekktir í dalnum og í næsta nágrenni.
Á árunum 2011-2012 fór fram fornleifauppgröftur á rauðablástursminjum á Skógum í Fnjóskadal. Í þeim gólflögum og ofnum sem fundust var gríðarlegt magn kola. Viðarfræðirannsókn á kolunum var gerð til þess að kanna á hvaða hátt skógunum var viðhaldið. Auk viðarfræðirannsókna voru kolagrafir í landi Skóga skráðar og ein þeirra fullgrafin til þess að afla frekari vitneskju um nýtingu skóglendisins.