Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Með fróðleik í fararnesti - Hjólað um borgina

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
13. september 2014 - 11:00
Nánari staðsetning: 
Lagt verður af stað frá Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands
Háskóli Íslands

Karl Benediktsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, leiðir hjólaferð um hjólastíga borgarinnar. Staldrað verður við á nokkrum stöðum og fjallað um breytta borgarmynd. Hvernig hefur allt sem fyrir augu ber áhrif á okkur, bæði það sem er byggt og hitt sem er óbyggt. Þátttakendur mæti á reiðhjóli. Lagt verður af stað frá Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, kl. 11 og er gert ráð fyrir að ferðin taki um það bil tvær klukkustundir. Ferðin er farin í samvinnu við Ferðafélag barnanna.

Háskóli Íslands og Ferðafélag Íslands halda áfram samstarfi sínu um gönguferðir sem efnt var til í tilefni aldarafmælis skólans 2011. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskólans blandast saman í áhugaverðum gönguferðum og nú hjólaferðum um höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni þess. Ferðirnar verða sex talsins og tekur hver um tvær klukkustundir. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.

Markmiðið með samstarfinu er að vekja áhuga almennings á fræðslu og hollri útivist og fjölga valkostum í þeim efnum. Um leið er vakin athygli og vonandi áhugi á fjölbreyttri starfsemi háskólans og Ferðafélagsins.
------------------------------------------
Næsta ferð:

11. október kl. 11 - Steinunn J. Kristjánsdóttir  og Orri Vésteinsson, prófessorar við Sagnfræði- og heimspekideild, leiða göngu um miðborgina þar sem skyggnst verður inn í upphaf landnáms og horft yfir sundið til Viðeyjar. Lagt verður af stað frá Aðalstræti 16  kl. 11.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012