Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Hugvísindaþing 2016 - fyrri dagur

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
11. mars 2016 - 12:30 til 17:15
Staðsetning viðburðar: 
Háskóli Íslands

Hugvísindaþing er árviss ráðstefna Hugvísindastofnunar þar sem fram er borið það helsta í fræðunum í stuttum fyrirlestrum og málstofumætluðum fræðasamfélaginu jafnt sem almenningi. Þingið var fyrst haldið árið 1996 og er því 20 ára í ár.

Setning Hugvísindaþings fer fram í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands föstudaginn 11. mars:

  • 12.30-12.35:Guðmundur Hálfdanarson, forseti Hugvísindasviðs, setur þingið.
  • 12.35-13.00: Hátíðarfyrirlestur: Steven Hartman, prófessor í enskum bókmenntum við Háskólann í Mið-Svíþjóð: „New Horizons of the Environmental Humanities“ („Ný framtíðarsýn umhverfishugvísinda“).

Málstofur verða haldnar í Aðalbyggingu Háskóla Íslands föstudaginn 11. mars frá 13.15-17.15 og laugardaginn 12. mars frá 10.00 til 16.30. Léttar veitingar verða í boði að þingi loknu.

Nánari upplýsingar á vef Hugvísindastofnunar.

Sjá viðburð á facebook.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012