Hvenær hefst þessi viðburður:
15. mars 2016 - 15:00 til 16:30
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
H-205

Menntavísindasvið Háskóla Íslands efnir til málstofu um starfsmenntun á framhaldsskólastigi og býður öllum sem áhuga hafa á málefnum starfsmenntunar til fundar. Markmið málstofunnar er að stefna saman fólki úr menntakerfi, stjórnsýslu og atvinnulífi til samræðu um stöðu starfsmenntunar á framhaldsskólastigi og hugmyndir um framtíðarskipan hennar.
Að þessu sinni verður rætt um fámennar iðngreinar og leiðir til að tryggja kennslu í þeim. Frummælandi verður Hjalti Jón Sveinsson. Hann talar stutt svo það verður rúmur tími fyrir samræðu og skoðanaskipti.