Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Áhrif sæstrengs á hag íslenskra heimila

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
29. nóvember 2013 - 11:00 til 12:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
L-204
Ásgeir Jónsson

Ásgeir Jónsson heldur erindið „Áhrif sæstrengs á hag íslenskra heimila“á málstofu hjá Hagfræðideild. 

Í þessari málstofu er fjallað um áhrif sæstrengs á hag íslenskra heimila. Íslendingar eru mestu raforkuframleiðendur heims ef miðað er við höfðatölu en íslensk heimili nýta aðeins 5% af raforkuvinnslu landsins. Ísland er einnig sér á báti að því leyti þar sem 90% landsmanna hafa aðgang að hitaveitu.

Íslenski orkugeirinn er að langmestu leyti í eigu opinberra aðila er mjög auðvelt að sjá fyrir sér endurdreifingu hagnaðar af hækkandi raforkuverði til almennings eða nýtingu til opinberra fjárfestinga. Einnig er ljóst að íslensk stjórnvöld hafa um langt árabil niðurgreitt raforku til húshitunar á köldum svæðum og tiltölulega auðvelt er að útfæra þá stefnumörkun til þess að halda raforkuverði áfram lágu hérlendis sé það val stjórnvalda. Hins vegar felast aðalrökin fyrir lagningu sæstrengs í auknu öryggi og skilvirkni í orkuframleiðslu auk áhættudreifingar í orkusölu.

Fram til þessa hafa öll lönd heimsins hagnast á lagningu langlínustrengja sem samtengja raforkusvæði og erfitt að sjá að Ísland verði undantekning frá því. Hins vegar er mörgum spurningum ósvarað um fjármögnun og tæknilega útfærslu sæstrengs. 

Ásgeir Jónsson er lektor við Hagfræðideild Háskóla Íslands.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012