Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Fyrirlestur: Um sambúðarvanda trúaðra og guðlausra

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
22. febrúar 2016 - 11:40
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 229
Háskóli Íslands

Mánudaginn 22. febrúar n.k. heldur Árni Bergmann fyrirlestur í boði Guðfræðistofnunar í stofu 229 í Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn hefst kl. 11:40.

Yfirskrift fyrirlestursins er: Um sambúðarvanda trúaðra og guðlausra. Fjallað verður um versnandi sambúð trúaðra og trúleysingja, spurt um orsakir og þá m.a. hlutverk fjölmiðla, útbreiðslu „fundamentalisma“ af ýmsu tagi, einnig um  nauðsyn sjálfsgagnrýni allra sem að málum koma sem og erfiðleika við að afla traustra upplýsinga um mikilvægar hliðar þessa sambúðarvanda.

Árni Bergmann lauk námi í rússnesku og bókmenntum frá Moskvuháskóla 1962. Hann var blaðamaður, gagnrýnandi og ritstjóri Þjóðviljans til 1992 og frá þeim tíma stundakennari við Háskóla Íslands allt til 2003. Hann er höfundur fjögurra skáldsagna, tveggja barnabóka, þriggja sjálfsævisögulegra bóka (nú síðast Eitt á ég samt, 2015) sem og ritanna Listin að lesa og Glíman við Guð.

Fyrirlesturinn er öllum opinn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012