
Föstudaginn 12. febrúar heldur Baldur Þórhallsson, prófessor við Stjórnmálafræðideild HÍ, fyrirlestur sem ber heitið Samskipti smáríkja við volduga nágranna: Samanburður á stöðu Norðurlandanna, Eystrasaltslandanna og Skotlands.
Fyrirlesturinn fjallar um að hvaða marki lítil ríki og ríkjahlutar eins og Norðurlöndin, Eystrasaltslöndin og Skotland þurfa á skjóli voldugri ríkja að halda. Kynnt verður til sögunnar nýleg kenning í alþjóðastjórnmálum, skjólskenningin, sem notuð er til að útskýra samskipti smáríkja við stærri ríki og bera saman stöðu smáríkja í alþjóðakerfinu. Skjólskenningin heldur því meðal annars fram að lítil ríki þurfi efnahagslegt, pólitískt og félagslegt skjól stærri ríkja. Skoðað verður hvort og þá að hvaða marki smáríki í norðanverðri Evrópu hafa leitað skjóls og hvort að kostnaður fylgi skjólinu. Einnig verður staða landanna/ríkjahlutanna gagnvart voldugri nágrönnum eins og Bretlandi, Þýskalandi og Rússlandi borin saman.
Fyrirlesturinn hefst kl. 12:00 og fer fram í stofu 101 í Odda í Háskóla Íslands.
Fyrirlestur Baldurs er hluti af fyrirlestraröð Stjórnmálafræðideildar og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands um ávinning og viðfangsefni samanburðarstjórnmála. Fimm opnir hádegisfyrirlestrar verða haldnir á hverjum föstudegi frá 29. janúar til 4. mars, í Odda 101, í Háskóla Íslands.