Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

EES-samningurinn og skuldbindingar Íslands

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
8. febrúar 2016 - 12:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Háskóli Íslands

Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og sendinefndar Evrópusambandsins á Íslandi

Samskipti Íslands við Evrópu grundvallast á samningnum um Evrópska efnahagssvæðið – EES-samningnum – en hann veitir Íslendingum m.a. tækifæri á að sækja sér nám, starfa og stunda viðskipti við önnur ríki innan álfunnar. Samningnum fylgja þó einnig töluverðar skuldbindingar og hefur Ísland staðið sig verst við að uppfylla þær af því 31 ríki sem er aðili að EES-samningnum. Ríkisstjórn Íslands var í ársbyrjun afhent skýrsla þar sem  gerð er grein fyrir framkvæmd samningsins og ýmsar tillögur settar fram um úrbætur. Á þessum fundi mun Páll Þórhallsson, formaður stýrihóps um framkvæmd EES-samningsins og einn skýrsluhöfunda, kynna helstu niðurstöður skýrslunnar. Claude Maerten, frá utanríkisþjónustu Evrópusambandsins, bregst við erindi Páls og ræðir EES-samninginn út frá sjónarhorni Evrópusambandsins.

Páll Þórhallsson, formaður stýrihóps um framkvæmd EES-samningsins.
Claude Maerten, frá utanríkisþjónustu Evrópusambandsins.

Fundarstjóri: Siv Friðleifsdóttir, fyrrum ráðherra.

Fundurinn fer fram á ensku og er opinn öllum.

Nánari upplýsingar: www.ams.hi.is / www.esb.is 
Alþjóðamálastofnun á Facebook: www.facebook.com/althjodamalastofnun
Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi á Facebook:
https://www.facebook.com/Evropusambandid 


 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012