Hvenær hefst þessi viðburður:
6. janúar 2016 - 15:30
Staðsetning viðburðar:

Ársfundur Siðfræðistofnunar verður haldinn miðvikudaginn 6. janúar kl. 15:30 í Norræna húsinu.
Á fundinum verður fjallað um starf landsiðaráða í nágrannalöndunum (sbr. Etisk råd í Danmörku) og þá spurningu hvort stofna eigi sérstakt Landsiðaráð hér á landi. Vilhjálmur Árnason mun fjalla um hlutverk landsiðaráða á Norðurlöndunum og einnig verður fjallað um verkefni Siðfræðistofnunar í því samhengi. Í framhaldi erinda verða pallborðsumræður þar sem þau Birgir Ármannsson, þingmaður, Birgir Jakobsson, landlæknir, Katrín Jakobsdóttir, formaður Vg og Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu ræða málin. Salvör Nordal stýrir pallborðsumræðum.