Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Erindi um framúrstefnuljóð, prenttilraunir og bókverk á 20. öld

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
17. nóvember 2015 - 12:05
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Fyrirlestrasalur
Benedikt Hjartarson

Þriðjudaginn 17. nóvember kl. 12.05 verða flutt tvö erindi um framúrstefnuljóð, prenttilraunir og bókverk á 20. öld í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu í tengslum við sýninguna „dadadieterdúr – samruni orðlistar og myndlistar.“

Benedikt Hjartarson flytur erindi sem hann kallar: „Hver síða verður að springa“: Um framúrstefnu, ljóðsmíðar og prenttilraunir“ og Vigdís Rún Jónsdóttir fjallar um kortlagningu á konkretljóðum á Íslandi á árunum 1955-1975.

Þriðjudaginn 24. nóvember á sama tíma verða Úlfhildur Dagsdóttir með erindi um konkretljóð Óskars Árna Óskarssonar og Sjón og Ólafur Engilbertsson fjalla um dadaisma og útgáfur Medúsu og Smekkleysu.

Efnt er til fyrirlestranna í samvinnu við Rannsóknastofu um framúrstefnu við Háskóla Íslands. Allir velkomnir!

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012