Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Stjórnun sjálfsáts og virkni leysikorna í sortuæxlum.

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
19. nóvember 2015 - 12:20 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum, bókasafn.
Háskóli Íslands

Fyrirlesari: Margrét Helga Ögmundsdóttir, sérfræðingur við Læknadeild HÍ.

Sjálfsát er leið frumu til þess að brjóta niður gölluð frumulíffæri og prótein. Þannig verða til ný byggingarefni fyrir áframhaldandi vöxt og viðgang frumunnar. Gallar í þessu kerfi hafa verið tengdir við aukna krabbameinsáhættu. Á hinn bóginn hefur verið sýnt að ferlið getur komið æxlinu til góða þegar það hefur myndast. Í erindinu verður fjallað um samband sjálfsáts og krabbameins og stjórnun sjálfsáts í sortuæxlafrumum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012