
Dr. Dennis Meadows heldur fyrirlestur á vegum Háskóla Íslands og Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun þar sem hann mun fjalla um nauðsyn þess að endurskoða hugtakið sjálfbær þróun. Fyrirlesturin verður í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands miðvikudaginn 27. nóvember kl. 13.15-14.15.
Þeir ríku geta ekki gert ráð fyrir að fá sífellt meira á meðan að þeir fátæku berjast við að ná sömu kjörum. Þjóðfélög sem byggja á markaðshyggju og vergum veldisvexti geta ekki gengið til lengdar því vöxturinn krefst orku og takmarkaðra auðlinda. Sjálfbær þróun þarf að stuðla að skilvirkum breytingum sem verða til með þátttöku fólks en ekki með þvingunum stjórnvalda. Það þarf að auka seiglu og viðnámsþrótt samfélaga og bjóða mismunandi lausnir því engin ein hentar öllum. Tengja þyrfti þá sem leiða vilja þessar breytingar og hafa í huga að þær munu taka langan tíma.
Dr. Dennis Meadows er prófessor emeritus í kerfisstjórnun og fyrrverandi forstöðumaður stofnunar um stefnumótun og félagsvísindi við Háskólann í New Hampshire, en rekur nú rannsóknastofu um gagnvirkt nám. Dr. Meadows er þekktastur fyrir að vera meðhöfundur skýrslunnar „Takmörk vaxtar“ (Limits to Growth) sem samin var fyrir Club of Rome árið 1972. Hann hefur verið prófessor á þremur fræðasviðum: stjórnunarfræðum, verkfræði og félagsvísindum og flutt fyrirlestra í meira en 50 löndum. Hann hefur hlotið margar viðurkenningar fyrir framlag sitt til vísinda, þar á meðal Japansverðlaunin 2009 en þau eru veitt fyrir frumleg og framúrskarandi afrek í vísindum og tækni sem stuðla að farsæld mannkynsins.
Dr. Meadows lauk bakkalárgráðu við Careton College og doktorsprófi í stjórnun frá MIT Sloan School of Management og hefur síðan hlotið nafnbót sem heiðursdoktor fjórum sinnum. Hann hefur stýrt rannsóknastofnunum við MIT, Dartmouth College og University of New Hampshire og verið forseti félags kvikra kerfislíkana (System Dynamics Society) og alþjóðlegu líkana- og leikjasamtakanna (International Simulation and Games Association). Hann hefur þróað fjölmarga leiki (strategic games) sem hafa víða verið nýttir í kennslu og leiðtogaþjálfun. Dr. Meadows hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja og verið ráðgjafi ríkisstjórna í Bandaríkjunum og víðar. Hann er einn af stofnendum Balatonhópsins, alþjóðlegs nets meira en 400 fagmanna frá rúmlega 30 löndum sem vinna við kerfisvísindi, opinbera stefnumótun og sjáflbæra þróun. Balatonhópurinn fundaði á Íslandi árið 2010.
Í skýrslunni „Takmörk vaxtar“ (Limits to Growth) nýttu höfundar kvik kerfislíkön til að sýna afleiðingar samspils fólksfjölgunar og takmarkaðra náttúruauðlinda. Tilgangurinn var ekki að spá ákveðið um framtíðina heldur að kanna samskipti veldisvaxtar og takmarkaðra auðlinda. Nú, 40 árum eftir að skýrslan kom út, reynist líkanið hafa staðist og þau vandamál sem mannkynið stendur frammi fyrir eru of margir jarðarbúar, eyðilegging vistkerfa, mengun og þverrun náttúruauðlinda.
Fyrirlesturinn, sem verður á ensku, er öllum opinn.