
Opnunarerindi Líffræðiráðstefnunnar 2015, fimmtudaginn 5. nóvember kl. 16:10 í fyrirlestrarsal Íslenskrar erfðagreiningar að Sturlugötu 8.
Erindið nefnist Why don’t we get more cancer? The crucial role of Extracellular Matrix and Microenvironment in metastasis and dormancy
Fyrirlesarinn Dr. Mina J. Bissell er einn af virtustu vísindamönnum heims á sviði krabbameinsrannsókna sem starfar við Lawrence Berkeley National Laboratory í Bandaríkjunum. Hún hefur helgað líf sitt brjóstakrabbameinsrannsóknum og þá sérstaklega rannsóknum á hlutverki millifrumuefnis í þroskun og sérhæfingu eðlilegra og illkynja brjóstþekjufruma. Rannsóknir dr. Bissell hafa leitt í ljós að mikilvægt er að hugsa um heildarmynd vefja og æxla og að framþróun æxlisvaxtar og meinvarpamyndunar er háð því hvernig umhverfi fruma er. Í fyrirlestri sínum mun dr Bissell fara yfir rannsóknir sínar og spyrja þeirrar spurningar af hverju fáum við ekki oftar krabbamein.
Hér má finna nýlegt viðtal við Dr. Bissell í Trends in Cancer