
Föstudaginn 22. nóvember fer fram doktorsvörn í lýðheilsuvísindum við Læknadeild Háskóla Íslands. Þá ver Þórólfur Guðnason doktorsritgerð sína „Sýkingar og sýklun pneumókokka hjá börnum á íslenskum leikskólum - faraldsfræði, áhættuþættir og íhlutandi aðgerðir“, (Infectious illnesses and pneumococcal carriage among preschool children at Icelandic day care centers - epidemiology, risk factors and intervention).
Andmælendur eru dr. Pentti Huovinen, prófessor í örveru- og ónæmisfræði við Læknadeild háskólans í Turku, og dr. Sigurður Guðmundsson, prófessor í Lyflækningum við Heilbrigðisvísindasvið HÍ.
Umsjónarkennari og aðalleiðbeinandi var dr. Haraldur Briem, dósent við Læknadeild HÍ.
Magnús Karl Magnússon, forseti Læknadeildar, stjórnar athöfninni.
Um rannsóknina
Markmið doktorsverkefnisins „Sýkingar og sýklun pneumókokka hjá börnum á íslenskum leikskólum - faraldsfræði, áhættuþættir og íhlutandi aðgerðir“ var að:
- Lýsa algengi pneumókokkasýklunar hjá börnum á leikskólum, greina áhættuþætti sýklunar og kanna áhrif hreinlætisaðgerða á leikskólum;
- lýsa nýgengi hita, öndunar- og meltingarfærasýkinga hjá börnum á leikskólum, greina áhættuþætti þeirra og kanna áhrif hreinlætisaðgerða á ofangreinda sjúkdóma.
Doktorsverkefnið byggði á tveimur rannsóknum á leikskólum. Rannsókn I var gerð á fimm leikskólum í Reykjavík á tímabilinu 1992-1999 þar sem 1228 börn voru rannsökuð. Rannsókn II var gerð á 30 leikskólum í Kópavogi og Hafnarfirði á tímabilinu 2000-2003 þar sem 2349 börn voru rannsökuð.
Rúmlega helmingur barnanna greindust með pneumókokka í nefkoki og 7-15% greindust með penicillin ónæma pneumókokka. Sýklun var marktækt breytileg milli leikskóla og var hæst hjá yngstu börnunum. Sýklalyfjanotkun lækkaði sýklun pneumókokka marktækt og einungis notkun cephalosporin sýklalyfja fyrir sýnatöku jók áhættuna á að greinast með penicillin ónæma pneumókokka. Fjöldi kvefpesta jók marktækt áhættuna á greiningu pneumókokka.
Nýgengi hita, öndunar- og meltingarfærasýkinga var há og svipaði til tíðni sjúkdómanna í erlendum rannsóknum. Áhættan var mest hjá yngri börnunum og breyttist tíðnin marktækt milli árstíða en var svipuð á milli leikskóla.
Staðlaðar hreinlætisaðgerðir á leikskólum höfðu hvorki áhrif á algengi pneumókokka né á nýgengi hita, öndunar- og/eða meltingarfærasýkinga, líklega vegna góðs undirliggjandi hreinlætis á íslenskum leikskólum.
Almennar upplýsingar
Þórólfur Guðnason fæddist 1953 og lauk embættisprófi frá Háskóla Íslands 1981. Hann stundaði nám í almennum barnalækningum á Íslandi og í Bandaríkjunum 1984-1988 og nám í smitsjúkdómum barna í Bandaríkjunum 1988-1990. Að námi loknu hefur Þórólfur starfað á Barnaspítala Hringsins, á eigin stofu og sem yfirlæknis bólusetninga hjá sóttvarnalækni á Embætti Landlæknis.
Eiginkona Þórólfs er Sara Hafsteinsdóttir, yfirsjúkraþjálfari á Landspítala háskólasjúkrahúsi, Fossvogi, og eiga þau tvo syni.