Hvenær hefst þessi viðburður:
17. október 2015 - 14:00 til 15:30
Nánari staðsetning:
Fyrirlestrasalur Íslenskrar erfðagreiningar

Íslensk erfðagreining (ÍE) stendur í samstarfi við Hjartaheill fyrir opnum fræðslufundi um hjartasjúkdóma og erfðir laugardaginn 17. október kl. 14:00-15:30. Fundurinn verður í fyrirlestrasal Íslenskrar erfðagreiningar að Sturlugötu 8.
Erindi flytja:
Davíð O. Arnar, hjartalæknir á Landspítala og aðjúnkt við Læknadeild
Guðmundur Þorgeirsson, hjartalæknir á Landspítala og prófessor við Læknadeild
Hilma Hólm, hjartalæknir á Landspítala og starfsmaður ÍE
Kári Stefánsson, læknir, prófessor og erfðafræðingur, ÍE
Nánari upplýsingar á vef Íslenskrar erfðagreiningar.