Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Hvernig er hægt að bregðast við loftslagsbreytingum með skipulagsgerð?

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
25. september 2015 - 15:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 131
Birna Björk Árnadóttir
Birna Björk Árnadóttir flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í umhverfis- og auðlindafræði. Heiti verkefnisins er Hvernig er hægt að bregðast við loftslagsbreytingum með skipulagsgerð?
 
Ágrip
 
Eitt þeirra stjórntækja sem kemur að gagni í baráttunni við loftslagsbreytingar er gerð og framkvæmd skipulagsáætlana stjórnvalda. Í verkefninu er sjónum beint að hlutverki skipulagsáætlana við að bregðast við orsökum loftslagsbreytinga og hvernig skipulagsákvarðanir koma að gagni við að aðlaga byggð og samfélag að óhjákvæmilegum afleiðingum þeirra. Markmið rannsóknarinnar var annars vegar að varpa ljósi á hvað skipulagsgerð getur lagt af mörkum til að draga úr loftslagsvandanum og hins vegar hvernig það er gert í aðalskipulagi sveitarfélaga á Íslandi. Rýnt var í fræðilegar heimildir og unnin tilviksrannsókn sem fól í sér greiningu á átta aðalskipulagsáætlunum og umhverfismati þeirra.
 
Niðurstöður tilviksrannsóknarinnar benda til þess að sveitarfélög á Íslandi séu meðvituð um tengsl skipulags og loftslagsbreytinga en nýta sér þær leiðir sem standa til boða mismikið. Tækifærin snúa einkum að þéttingu byggðar og aðgerðum í samgöngumálum auk skógræktar. Í þéttbýli við ströndina er megináherslan á viðbrögð við fyrirsjáanlegri hækkun sjávarborðs með sjóvörnum og ákvörðunum um lágmarksgólfhæðir bygginga til að fyrirbyggja tjón af völdum flóða. Niðurstöðurnar benda þó til þess að í aðalskipulagi sé talsvert svigrúm til að taka á loftslagsbreytingum af meiri myndugleika.
 
Leiðbeinendur voru Þorbjörg Kjartansdóttir og Matthildur Kr.Elmarsdóttir. 
Umsjónarkennari var Karl Benediktsson.
Prófdómari var Stefán Gíslason.
 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012