
Í tilefni af Evrópska tungumáladeginum stendur Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur fyrir hátíðardagskrá í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið og STÍL – Samtök tungumálakennara á Íslandi og með stuðningi Nordplus-tungumálaáætlunarinnar.
Dagskráin ber yfirskriftina „Tungumálakennsla á tímamótum“:
• Vigdís Finnbogadóttir, velgjörðarsendiherra UNESCO fyrir tungumál, setur málþingið.
• Afhending Evrópumerkisins (European Label)
• Sigrún Ólafsdóttir, verkefnisstjóri Rannsóknamiðstöð Íslands: „Nordplus tungumálaáætlunin.“
• Brynhildur Ásgeirsdóttir, formaður Linguae – Félags tungumálanema við Háskóla Íslands.
• Alma Ágústsdóttir, enskunemi við Háskóla Íslands: „Enskukunnátta.“
Hádegishlé, léttar veitingar.
• Lárus H. Bjarnason, rektor Menntaskólans við Hamrahlíð: „Af sjónarhóli skólastjórnenda.“
• Margrét Helga Hjartardóttir, frönskukennari við Kvennaskólann í Reykjavík: „Staða erlendra tungumála í Kvennaskólanum eftir styttingu náms til stúdentsprófs.“
• Anna Margrét Bjarnadóttir, dönskukennari og fagstjóri í Víðistaðaskóla: „Viðhorf gagnvart tungumálakennslu.“
Fundarstjóri er Petrína Rós Karlsdóttir, formaður STÍL.
Tungumálakennarar og áhugafólk um tungumál eru hvattir til að mæta.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum
www.vigdis.hi.is