
Föstudaginn 25. september ver Hálfdán Ágústsson doktorsritgerð sína í eðlisfræði við Raunvísindadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Þættir á millikvarða í vindasviði yfir fjöllóttu landi (Mesoscale aspects of atmospheric flow in complex orography).
Andmælendur eru dr. Peter Sheridan, vísindamaður við Bresku veðurstofuna, Exeter, og dr. Andreas Dörnbrack, vísindamaður við DLR, stofnun í eðlisfræði lofthjúpsins, Þýskalandi.
Leiðbeinandi var dr. Haraldur Ólafsson, prófessor í eðlisfræði við Háskóla Íslands. Auk hans sátu í doktorsnefnd dr. Guðrún Nína Petersen, veðurfræðingur, Veðurstofu Íslands, og dr. Joan Cuxart, prófessor í veðurfræði við Háskólann á Baleareyjum í Palma á Mallorca.
Dr. Hafliði Pétur Gíslason, prófessor og deildarforseti Raunvísindadeildar Háskóla Íslands, stjórnar athöfninni.
Ágrip af rannsókn
Veður og veðurfar á Íslandi ræðst af stærstu leyti af þeim veðrakerfum sem hingað koma og af áhrifum fjalla og landslags á þau. Í ritgerð Hálfdáns eru 15 ritrýndar fræðigreinar sem fjalla um veður í flóknu landslagi, með áherslu á veður á Íslandi. Óveður af ýmsum toga eru umfjöllunarefni flestra greinanna og fjalla þær m.a. um storma, ókyrrð og ísingu, en með hafa þó slæðst greinar um sakleysislegra veður, þ.m.t. um sólfarsvinda og úrkomufar. Megininntak rannsókna Hálfdáns lýtur að greiningu og hagnýtingu mælinga á veðri og lofthjúpsreikninga til að bæta staðbundnar veðurspár í flóknu landslagi. Brugðið er ljósi á eðli óveðra í fjalllendi og mikilvægi þéttriðins reikninets til að herma réttilega vinda og hviður við yfirborð jarðar, og ókyrrð ofan fjalla. Túlkun og úrvinnsla mælinga á veðri og ástandi lofthjúpsins eru snar þáttur í vinnu Hálfdáns en mælingarnar hafa verið nýttar við kortlagningu veðurs, m.a. með tilliti til vindafars og ísingar á raflínur. Því til viðbótar eru mælingarnar nýttar til að sannreyna lofthjúpsreikninga og til að greina og bæta úr veikleikum veðurlíkananna, einkum nærri fjöllum. Í því tilliti hafa m.a. verið gerðar tilraunir með ómönnuð loftför, en slík tól má nota til þarfari verka en að deyða fólk, en sýnt er fram á að mælingar á veðri úr einföldum og litlum flygildum má nota til að þvinga veðurspálíkön og bæta mjög staðbundnar skammtímaveðurspár. Hluti vinnu Hálfdáns lýtur að kortlagningu og hermun ísingar á raflínur, jafnt áhleðslu slyddu sem og skýjaísingar, og hafa í því tilliti verið gerð ísingarkort fyrir Ísland auk þess að aðferðir við líkanreikninga á ísingu hafa verið bættar.
Um doktorsefnið
Hálfdán Ágústsson er fæddur 1977. Hann lýkur nú doktorsprófi frá Háskóla Íslands og hefur áður lokið BS- og MS-prófi frá sama skóla. Hann sinnir nú veðurrannsóknum í Noregi en hefur áður starfað við veðurrannsóknir hjá Belgingi og Veðurstofu Íslands. Hálfdán er kvæntur Hrafnhildi Hannesdóttur og saman eiga þau þrjá syni.