Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Leikskólakennarastarfið í femínísku ljósi

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
27. nóvember 2013 - 12:30 til 13:30
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 201
Laufey Axelsdóttir
Miðvikudaginn 27. nóvember 2013 heldur Laufey Axelsdóttir fyrirlesturinn „Leikskólakennarastarfið í femínísku ljósi“ kl. 12.30-13.30 í stofu 201 í Lögbergi. Fyrirlesturinn er á vegum MARK Miðstöðvar margbreytileika- og kynjarannsókna.
 
Í erindinu fjallar Laufey um MA-rannsókn sína í kynjafræði en hún kannaði samskipti kvenna og karla sem starfa í leikskólum, faglega stöðu leikskóla og áhrif sveitarfélaga á stöðu og þróun leikskólakennarastarfsins. Lögð verður áhersla á að fjalla um vinnubrögð kvenna og karla sem starfa í leikskólum og hvaða væntingar eru gerðar til þeirra innan leikskólanna.
 
Laufey Axelsdóttir er MA í kynjafræði.
 
ÖLL VELKOMIN
 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012