
Föstudaginn 4. september kl. 12:00-13:00 í Háskólatorgi 104
Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og Rannsóknaseturs um smáríki
Skotland og Ísland: Kreppan, hræringar og stjórnarskrárbreytingar
Í þessum fyrirlestri mun Mike Small skoða stöðu mála nú ári eftir þjóðaratkvæðagreiðslu Skota um sjálfstæði landsins. Hvaða lærdóm má draga af atkvæðagreiðslunni og hvaða áhrif hefur hún haft á bresk og evrópsk stjórnmál? Einnig mun hann fjalla um ákall almennings um breytingar í kjölfar kreppunnar og bera saman þær hreyfingar sem myndast hafa á Íslandi og í Skotlandi.
Mike Small er ritstjóri Bella Caledonia og blaðamaður fyrir the Guardian.
Fundarstjóri:
Alyson Bailes, aðjúnkt við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
Fundurinn fer fram á ensku. Allir velkomnir.
Nánari upplýsingar: www.ams.hi.is
Alþjóðamálastofnun á Facebook: www.facebook.com/althjodamalastofnun