Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Vísindi og nýsköpun í augsýn - Risk, Oculis og Oxymap

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
20. nóvember 2013 - 12:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Hátíðasalur
Háskóli Íslands

Í fyrirlestraröðinni „Fyrirtæki verður til“ verður í þetta sinn fjallað um tilurð þriggja sprotafyrirtækja sem öll hafa sprottið úr frjóum jarðvegi Háskóla Íslands og tengjast rannsóknum í augnlækningum. Fyrirtækin eru Risk ehf., Oculis ehf. og Oxymap ehf.  

Einar Stefánsson, prófessor í augnlækningum, kemur við sögu við tilurð fyrirtækjanna þriggja en hann er mikilvirkur vísindamaður á sviði augnlækninga. Einar hefur beitt sér sérstaklega í nýsköpun og stofnun sprotafyrirtækja sem byggja á vísindalegum grunni. Hann mun fara yfir fæðingu allra fyrirtækjanna og ræða um tengsl vísinda og nýsköpunar.

Risk ehf.
Risk ehf. er sprottið úr rannsóknum innan Háskóla Íslands. Fyrirtækið hlaut önnur verðlaun í frumkvöðlakeppninni Innovit sem kennd er við Gulleggið árið 2009.  Lausnir fyrirtækisins byggjast á smíði hugbúnaðar í formi áhættureiknivélar sem metur sjálfvirkt áhættu sykursjúks einstaklings á augnsjúkdómum og sjónskerðingu vegna sykursýki. Upplýsingar um þekkta áhættuþætti, s.s. tegund og tímalengd sykursýki, langtímablóðsykur og blóðþrýsting, eru skráðar fyrir hvern einstakling og hugbúnaðurinn metur áhættu einstaklingsins.  Þessi áhættugreining mun gefa til kynna skimunartíðni sykursjúkra og því hagræða tíðni skimunar eftir því  sem við á og þar af leiðandi spara fjármuni.

Oculis ehf.
Oculis ehf. er fyrirtæki sem vinnur að þróun augnlyfja. Fyrirtækið vinnur með nanóagnir í augndropum sem auka frásog lyfja inn í augað. Þannig má bæta lyfjameðferð við ýmsum algengum augnsjúkdómum. Hægt er að meðhöndla sjónhimnusjúkdóma með augndropum þannig að sjúklingar geti losnað undan nálarstungum í auga og fengið augndropa í staðinn. Ekki þarf að fjölyrða um lífsgæðin sem þessu fylgir. Miklar líkur eru á að Oculis ehf. geti haft verulegar tekjur í framtíðinni af einkaleyfisvarðri tækni til lyfjagjafar í auga.

Oxymap ehf.
Fyrirtækið Oxymap var stofnað af vísindamönnum í læknisfræði og verkfræði við Háskóla Íslands til að þróa tækjabúnað sem getur metið blóðþurrðarsjúkdóma í augnbotnum með stafrænni myndvinnslu. Tæknin nýtist við meðhöndlun á sykursýki, bláæðastíflum í sjónhimnu og gláku og metur einnig áhrif lyfja- og leysimeðferðar.

Um fyrirlestraröðina
Í fyrirlestraröðinni „Fyrirtæki verður til“ fjalla frumkvöðlar og stjórnendur íslenskra fyrirtækja um hvernig nýsköpun getur fætt af sér atvinnuskapandi starfsemi. Fyrirlesarar útskýra frumhugmyndirnar, hvernig fyrirtækin urðu til, hvaða hindranir þurfti að yfirstíga í fyrstu og á langri leið. Jafnframt víkja þeir að því hvernig fyrirtækin hafa lagað sig að nýjum aðstæðum eða tekið gríðarlegum breytingum frá því þau hófu fyrst rekstur.

Markmið Háskóla Íslands með fyrirlestraröðinni „Fyrirtæki verður til“ er að auka vitund almennings, stúdenta og starfsmanna háskólans um gildi nýsköpunar- og frumkvöðlastarfs ásamt því að ýta undir hugmyndir, verkefni og sprotafyrirtæki sem verða ný aflstöð í atvinnulífinu.

Stefna Háskóla Íslands er að styrkja og hraða uppbyggingu á vísindastarfi og rannsóknatengdu framhaldsnámi og örva þannig nýsköpun í vísindum ásamt því að efla stuðning við sprotafyrirtæki vísindamanna og nemenda með atvinnu og verðmætasköpun í huga.

Stúdentar, starfsfólk og allir þeir sem áhuga hafa á nýsköpun, hagnýtingu rannsókna og uppbyggingu fjölbreytts atvinnulífs eru hvattir til að sækja fyrirlesturinn og fylgjast með dagskrá fyrirlestrarraðarinnar.

Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og er aðgangur ókeypis. Að erindinu loknu verður boðið upp á hressingu.
 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012