
Opinn fundur á vegum MBA námsins í Háskóla Íslands, ÍMARK og Maestro-félag meistaranema í Viðskipta- og Hagfræðideild í Hátíðasal Háskóla Íslands, fimmtudaginn 21.nóvember kl.12-13.
Magnús Hafliðason, markaðsstjóri Dominos, fjallar um markaðsstefnu fyrirtækisins og lykilinn að markaðslegum árangri.
Dominos var valið markaðsfyrirtæki ársins 2013. Fyrirtækið hefur verið með rekstur hér á landi í 20 ár og er nú með 18 staði víðsvegar á landinu. Fyrirtækið hefur náð að auka markaðshlutdeild sína verulega á þessu ári og er með mestu markaðshlutdeild á skyndibitamarkaðnum. Ísland er öflugasti markaður innan Dominos Keðjunnar miðað við höfðatölu og hlotið margar viðurkenningar á árinu erlendis frá.
Fundarstjóri:Þórhallur Örn Guðlaugsson, dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Hvar: Hátíðasalur Háskóla Íslands
Hvenær: Fimmtudaginn 21.nóvember
Tími: 12-13
Ókeypis aðgangur, allir velkomnir!