Hvenær hefst þessi viðburður:
21. nóvember 2013 - 16:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Hátíðarsalur

Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands verða veitt í 15. sinn þann 21. nóvember 2013.
Samkeppnin um hagnýtingarverðlaunin er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Tæknigarðs, Árnason|Faktor og Einkaleyfastofunnar sem leggur til verðlaunafé auk þátttöku í dómnefnd.
Leitað er eftir hagnýtanlegum hugmyndum frá starfsmönnum og nemendum Háskóla Íslands og tengdum stofnunum. Reynslan frá upphafi samkeppninnar sýnir að fleira má hagnýta en tæknilegar lausnir í iðnaði.
Veitt eru peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin, ein milljón fyrir fyrsta sæti, 500 þ.kr. fyrir annað sæti og 250 þ.kr. fyrir það þriðja. Við val á hugmynd skoðar dómnefndin:
i) Leiðir við hagnýtingu og hversu fljótt unnt sé að hagnýta uppfinningu.
ii) Hvort hagnýting styðji við stefnu og starfsemi HÍ.
iii) Rannsóknavinnu að baki verkefnis/hugmyndar.
iv) Nýnæmi og frumleika.
v) Ávinning fyrir samfélagið.
Frestur til að skila inn tillögum rann út föstudaginn 25. október.
Við úthlutun Hagnýtingarverðlaunanna í ár verður dr. Rögnvaldur Ólafsson, forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands, heiðraður fyrir framlag sitt til vísinda og nýsköpunar.