
Ráðstefna 18. júní: Vald og lýðræði á Íslandi – 100 árum síðar
Í Háskóla Íslands verður 100 ára afmæli kosningaréttar íslenskra kvenna minnst með ráðstefnunni, Vald og lýðræði á Íslandi – 100 árum síðar. Meginþema ráðstefnunnar er margbreytileiki, þátttaka og lýðræðishugmyndir í íslensku samfélagi nú 100 árum eftir að kosningaréttur varð almennur á Íslandi. Í tengslum við ráðstefnuna verður Dr. Önnu Guðrúnu Jónasdóttur, prófessor í stjórnmála- og kynjafræði við Háskólann í Örebro veitt heiðursdoktorsnafnbót og verður hún fyrsti heiðursdoktorinn við Stjórnmálafræðideild HÍ.
Ráðstefnan er haldin í Hátíðasal HÍ og hefst kl. 13:00. Ráðstefnan fer fram á íslensku og ensku.
Aðgangur er ókeypis – öll velkomin.
___________________________________________________
Kl. 13.00-15.00 Vald og lýðræði 100 árum síðar
- Reflecting on the Representation of Women in Politics, Dr. Sarah Childs, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann í Bristol
- Men and the suffrage in Iceland, Dr. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands
- Margbreytileiki, þátttaka og lýðræðishugmyndir 100 árum síðar: Pallborð með þátttakendum rannsóknarverkefnisins Vald og lýðræði
Kl. 15.00 – Kaffihlé og veitingar
Kl. 15.30-17.00 Veiting doktorsnafnbótar
- Tónlistaratriði: kvennakórinn Vox feminae
- Veiting doktorsnafnbótar: Dr. Anna Guðrún Jónasdóttir
- From Iceland to International Love Studies, Dr. Anna Guðrún Jónasdóttir
Kl. 17.00 – Veitingar
